Hreinlæti og gerlagróður

Hreinlæti og gerlagróður

Viðfangsefnið er hreinlæti, gerlagróður og gæði afurða. Lög er höfuðáhersla er á hreinlæti í matvælavinnslu og kröfur opinberra eftirlitsaðila, kaupenda og neytenda í því sambandi. Farið er yfir alla helstu þætti sem hafa áhrif á gerlagróður í fiski, svo sem slæma meðhöndlun, ófullnægjandi þrif, of hátt hitastig og fleira sem skapar kjöraðstæður fyrir hvers kyns örverur. Einnig er lögð áhersla á persónulegt hreinlæti þeirra sem starfa við matvælaframleiðslu. Farið er yfir framkvæmd þrifa og leiðbeint um fullnægjandi þvott, sótthreinsun og umgengni í fiskvinnslu. Þátttakendur tileinki sér viðhorf þar sem hreinlæti og ábyrg umgengni er höfð að leiðarljósi. þeim er kynnt uppbygging og gerð þrifaáætlana og hvernig þeim er síðan fylgt eftir, á sem áhrifaríkastan hátt.

 Lengd 6 kest : Kennari frá Fisktækniskóla Íslands.

Fyrirtækjum er bent á að hafa samband við okkur til að leita tilboða í námskeið.

Fisktækniskóli íslands

Víkurbraut 56  |  240 Grindavík, Iceland

Símar:  4125966  /  4125968  /  4125965
Vefpóstur:  info@fiskt.is

Skráning á póstlista