Við fengum góða heimsókn í skólann í morgun þegar þau Ásthildur Lóa Þórsdóttir og Sigurður Helgi Pálmason kíktu á okkur í kjördæmaviku. Það er alltaf gaman að fá tækifæri til að kynna skólann og þær mikilvægu námslínur sem eru hér í boði.
Kærar þakkir fyrir komuna Ásthildur, Sigurður.
Magnús Gunnarsson tók myndina og lóðsaði þingmennina um Grindavík enda öllum hnútum kunnugur í bænum.