FRÉTTIR

Przyszłość należy do technologii
Bernharð Aðalsteinsson Bernharð Aðalsteinsson

Przyszłość należy do technologii

VMożliwości ukryte w sektorach związanych z oceanem są fenomenalne. Standardy jakości wzrosną w najbliższej przyszłości, a wraz z nimi wielki wzrost innowacji, rozwój nowych technologii i ulepszonych metod przetwarzania

Read More
FRAMTÍÐIN LIGGUR Í TÆKNINÁMI
Bernharð Aðalsteinsson Bernharð Aðalsteinsson

FRAMTÍÐIN LIGGUR Í TÆKNINÁMI

Tækifærin sem felast í haftengdum greinum eru stórkostleg. Gæðaviðmið munu hækka á næstunni auk þess sem það blasir við mikill vöxtur í nýsköpun, þróun nýrrar tækni og bættra vinnsluaðferða.

Read More
Hacking Reykjanes
Bernharð Aðalsteinsson Bernharð Aðalsteinsson

Hacking Reykjanes

Hacking Reykjanes fór fram dagana 18-20.mars og var það okkar eigin Alexandra Leeper ásamt Justine Vanhalst sem unnu bestu hugmyndina með hugmyndina HRINGASVEPPIR (a circular mushroom production valorising the usage of side streams from the Reykjanes peninsula directly available to local consumers).

Read More
Skráning stendur enn yfir í Fisktækni. Tveggja ára hagnýtt framhaldsskólanám til starfa í sjávarútvegi.
Bernharð Aðalsteinsson Bernharð Aðalsteinsson

Skráning stendur enn yfir í Fisktækni. Tveggja ára hagnýtt framhaldsskólanám til starfa í sjávarútvegi.

Fisktækniskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám í sjávarútvegi á framhaldsskólastigi. Námið er hagnýtt tveggja ára gunnnám sem byggt er upp sem önnur hver önn í skóla og hin á vinnustað. Í starfsnámi er leitast við að bjóða nemendum upp á val um vinnustað /vetfang með hliðsjón af áhugasviði hvers og eins t.d sjómennsku, fiskvinnslu eða fiskeldi.

Read More
Innritun í framhaldsskóla á haustönn 2021- Fisktækniskóli Íslands

Smáskipanám skipstjórn < 15m og styttri. Ný námskrá til réttindanáms skipstjóra á skipum.
Bernharð Aðalsteinsson Bernharð Aðalsteinsson

Smáskipanám skipstjórn < 15m og styttri. Ný námskrá til réttindanáms skipstjóra á skipum.

Ný námskrá til réttindanáms skipstjóra á skipum <15m hefur nú litið dagsins ljós. Hún gerir fjölmargar kröfur um nám umfram það sem fólst í fyrri námskrá sem náði til réttindanáms á smáskipum < 12m. Helstu breytingar eru þær að nú hefur verið aukið verulega við kennslu í þáttum sem áður var lagt upp með sem kynning og fræðslu í <12m náminu, en er nú gert að ýtarlegri kennslu og sérstökum nýjum prófþáttum. Þetta á við um:

• ROC fjarskiptaréttindi (próf)

• Verklega grunnþjálfun í siglingahermi (próf)

• Viðhald og umhirða vélbúnaðar í skipum <15m. (próf)

Þannig mun því prófþáttum í náminu fjölga úr þremur í sex. Áður voru prófþættirnir siglingafræði, siglingareglur og stöðugleiki skipa. Aukin er áhersla á nám í siglingareglum og hönnun skipa, stöðugleika og kunnáttu í notkun siglingatækja. Einkunnina 6.0 þarf til þess að standast hvern námsþátt sem er til prófs. Þó skal að jafnaði miðað við að 5.0 sé lágmarks einkunn til að standast einstaka námsþætti námsins.

Nú hafa líka verið sett inntökuskilyrði sem miðast við að nemendur hafi lokið grunnskóla og séu a.m.k.16 ára þegar þeir hefja nám. Tímalengd námskeiðsins hefur verið aukin samsvarandi við auknar kröfur og meira umfang námsins.

Til þess að fá útgefið atvinnuskírteini, þarf að leggja fram staðfestan siglingatíma í eitt ár (átta mánuði) og hafa lokið námskeiði í öryggisfræðslu hjá Slysavarnarskóla sjómanna, eða öðrum viðurkenndum aðilum (5 daga námskeið). Nánari upplýsingar um námið er að finna á heimasíðu Samgöngustofu, samgongustofa.is. m.a. um uppfærslu skipstjórnarréttinda úr <12m í <15m. Réttindi til <15m skipstjórn ná til strandsiglinga á landgrunni Íslands í allt að 50 sjómílur frá landi.

Read More