HACCP GÆÐAKERFI

Fjallað um hvað HACCP stendur fyrir. Skoðað náið hvað telst til mililvægra þátta með tilliti til: húsnæðis og hönnunar, vinnslu-umhverfis, hönnunnar véla og áhalda, þrifaáætluna, hreinlætis og heilbrigðis starfsfólks, flutninga, rekjanleikja og innköllunar og þjálfunar starfsfólks. Við skoðum hvaða hættur eru til staðar við hráefnisvinnslu: lífræðilegar, efnafræðilegar og hvaða aðskotarefni við þurfum að varast. Vinnum að uppsetningu HACCP kerfis hjá mismunandi fyrirtækjum með því að nota hugmyndarfræði HACCP kerfis. Stuðst er við eyðublöðin „Hættugreining“ og „HACCP áætlun“ í gegnum allt ferlið. Gerum vörulýsingar og skilgreinum hvernig vörurnar koma til með að vera notaðar og af hverjum. Gerum flæðirit og ákvörðunartré til að greina mikilvæga stýristaði (mss) fyrir mismunandi fyrirtæki. Að lokum skoðum við hvernig HACCP áætlunareyðublað geti litið út hjá mismunandi fyrirtækjum með nauðsynlegum vöktunaraðgerðum.

Námskeiðið er hugsað fyrir alla þá sem meðhöndla matvæli á einn eða annan hátt.
Áhersla er lögð á að þátttakendur skilji grundvallaratriði HACCP gæðakerfisins og geti innleitt það í sínum fyrirtækjum. Mikið er lagt upp úr verkefnavinnu. Þátttakendur vinna m.a. verkefni úr eigin gæðakerfum.

Lengd 24 kennslustundir: Verð: 80.000 kr. 01.06. og 07.06. kl. 09:00-16:00

Kennarar frá Fisktækniskóla Íslands.   

Upplýsingar í síma 412-5966, info@fiskt.is