Fyrsta lota hjá nýjum hópi í Vinnslutækni

Hér má sjá myndir úr fyrstu staðarlotu hjá nýjum hópi í Marel-Vinnslutækni. Í hverri lotu fer fram vinnustaðanám hjá fyrirtækjum sem nota þann búnað sem verið er að læra um hverju sinni. Brim varð fyrir valinu að þessu sinni en fyrirtækið hefur mikinn og fjölbreyttan tækjabúnað frá Marel og þökkum við þeim Gísla og Eiríki góðar móttökur. Fyrirtækið Fiskkaup tók líka á móti hópnum í vinnustaðanám en þar sem unnið er með búnað frá Völku sem nú er reyndar í eigu Marel við þökkum þeim Guðjóni og Sigga fyrir góðar móttökur.

Framhaldsbraut í Marel-Vinnslutækni hefur verið í boði frá árinu 2014 og hafa átta hópar útskrifast frá okkur úr þessu mjög sérhæfða námi. Það er alltaf gaman að segja frá þegar vel gengur en nú í janúar byrjaði nýr hópur í Marel-Vinnslutækni náminu og er hópurinn fullskipaður reynsluboltum úr greininni.

Námið var þróað í samstarfi við atvinnulífið, Marel og Fisktækniskóli Íslands gerðu með sér samning um samstarf þar sem Marel sér skólanum fyrir kennsluaðstöðu, aðgengi að tækjum og kennurum í þeim greinum sem lúta að tækjum Marel.

Námið var skipulagt með þarfir atvinnulífs í huga, hentar fólki sem er starfandi í matvælavinnslu eða hefur reynslu af slíku starfi og kýs að sérhæfa sig í stýringu hug- og vélbúnaðar í matvælavinnslu. Kennsla sérhæfingar nær yfir eina önn auk vinnustaðanáms og áherslan er kennsla á tækjabúnað, hugbúnað og hátækni. Kennt er í blönduðu námi sem skiptist í bóklegt og verklegt nám í öllum kennslulotum. Nemendur útskrifast með námslok á þriðja hæfniþrepi.

Next
Next

Rafræn kennsla hittir í mark hjá fyrirtækjum