Námsstyrkir IceFish 2026 tilkynntir við hátíðlega athöfn í Sjávarklasanum
Skipuleggjendur IceFish sýningarinnar sem fer fram dagana 22-24. september 2026 tilkynntu í dag hverjir yrðu handhafar IceFish námsstyrkjanna 2026 við hátíðlega athöfn í Sjávarklasanum í Reykjavík.
Styrkirnir eru táknrænir fyrir skuldbindingu viðburðarins á að fjárfesta í framtíð fiskveiða og fiskeldis. Nemendurnir hljóta 300.000 króna styrk til náms. Í dag fór fram fyrsti hluti styrkveitinganna og viðurkenningaskjöl voru afhent en seinni hluti styrkjanna verður svo athentur í september á verðlaunahátíð IceFish sem fer fram þriðjudaginn 22. september.
Það er gaman að segja frá því að allir þrír nemendurnir sem hljóta styrkina í ár eru nemendur við Fisktækniskóla Íslands. Þær eru Katarzyna Staszek, Ewa Jaros og Malgorzata Barbara Sworowska sem allar stunda nám í Gæðastjórnun við skólann og starfa í fiskvinnslu. Katarzyna hjá Brim í Reyjavík, Ewa hjá Jakobi Valgeiri í Bolungarvík og Malgorzata hjá Nýfiski í Sandgerði.
Þær Katarzyna og Malgorzata voru viðstaddar afhendinguna en íslenska veðrið kom í veg fyrir að Ewa kæmist frá Vestfjörðum en hún mun fá viðurkenningarskírteini sitt sent frá skólameistara.
Sérhæfð dómnefnd úr greininni mat umsóknirnar um styrki, þar á meðal Klemenz Sæmundsson, skólastjóri Fisktæknikóla Íslands; Hrefna Karlsdóttir, aðalráðgjafi hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Kjartan Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda og Bjarni Jónsson sem var fulltrúi IceFish.
Sally Wattam, viðburðastjóri Mercator Media, skipuleggjandi IceFish, sagði:
„Ég er himinlifandi að afhenda þessi styrki í dag. Sem skipuleggjendur IceFish leggjum við okkur fram um að styðja við fiskveiðar og fiskeldi á Íslandi, samhliða því að aðlaga og stækka IceFish sýninguna eftir því sem geirarnir þróast, til að mæta hækkandi kröfum. Við erum einnig ánægð með að styðja samfélögin sem starfa í greinunum, og sérstaklega næstu kynslóð þegar þau hefja feril sinn og móta framtíðina. Ég óska styrkþegum alls hins besta í námi og starfi. Við hlökkum öll til að fylgjast með framförum þeirra í blómlegum haftengdum greinum á Íslandi.“
Klemenz Sæmundsson, Ásdís Pálsdóttir, Katarzyna Staszek, Malgorzata Barbara Sworowska, Sally Wattam, Tracey Clarke, Monika Maria Figlarska, Hrefna Karlsdóttir, Þórdís Daníelsdóttir og Bjarni Jónsson
Klemenz Sæmundsson, skólastjóri Fisktækniskóla Íslands óskaði styrkþegum innilega til hamingju og sagði: „Styrkirnir eru mjög verðmætir fyrir okkur. Það er hvatning bæði fyrir nemendur og skólann að hljóta þessa viðurkenningu. Öflug menntun er án efa gríðarlega mikilvæg fyrir greinina og þessi kynning sýnir að IceFish og fyrirtæki í haftengdum greinum láta sér annt um þá framför sem góð menntun hefur í för með sér og það er mjög mikils virði fyrir okkur.“
IceFish, íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin og ráðstefnan fer fram dagana 22-24. september 2026 í Smáranum og Fifunni í Kópavogi (icefish.is)