Fisktækniskólinn flytur heim

Það er er alltaf í nógu að snúast hjá Fisktækniskólanum, nýbúið að útskrifa 45 flotta nemendur og nú er komið að því að flytja skólann aftur heim í Grindavíkina okkar kæru.

Grindavíkurbær er stærsti eigandi skólans og nú hefur samið um að Fisktækniskólinn leigi glæsilegt skólahúsnæði í eigu bæjarins, Hópskóla eftir tvö góð ár í Suðurnesjabæ.

Skólinn mun taka formlega til starfa í Grindavík á haustönn 2026 en fram að því verður ekki hægt að ná í starfsfólk á staðnum en á meðan verður aðeins hægt að ná í okkur í síma eða með tölvupósti.

Innritun nýnema er í fullum gangi og fer vel af stað en skráning fer fram á island.is

· Klemenz Sæmundsson, skólameistari – 864 7171 klemenz@fiskt.is

· Ásdís V. Pálsdóttir, aðstoðarskólameistari – 895 7105 asdis@fiskt.is

· Þórdís Daníelsdóttir, skrifstofustjóri – 895 9299 disa@fiskt.is

Sjá einnig frekari upplýsingar um starfsfólk á heimasíðu skólans hér: https://www.fiskt.is/um-okkur

Next
Next

Námsstyrkir IceFish 2026 tilkynntir við hátíðlega athöfn í Sjávarklasanum