Þökkum Brim fyrir frábært samstarf við móttöku skiptinema í vinnustaðanám
Fisktækniskólinn og Brim hafa lengi átt í frábæru samstarfi og tóku saman höndum enn á ný við móttöku skiptinema frá Bermeo Nautika Eskola, vinaskóla við Biskay flóann í Baskalandi á Spáni.
Bermeo Skólinn er tengiliður okkar í gegnum Erasmus+ samstarf. Kennarar frá þeim hafa komið námsferð til okkar og sömuleiðis við fórum til þeirra síðasta vor sem styrkti þessi góðu tengsl. Nú í vor kom nemendahópur í stutta og mjög vel heppnaða námsferð til okkar en það var Eva Lanzas, vélstjórnarnemi sem fékk tækifæri til að taka þriggja mánaða skipti-önn í vinnustaðanámi hjá Andra og meistaraflokknum hans á vélaverkstæði Brim.
Þessir þrír mánuðir flugu hjá með nýju ævintýri í hverri viku. Hún vann á vélaverkstæðinu, heimsótti loðnuvinnsluna á Akranesi og Marel, þar sem hún sá vélarnar í framleiðslu.
Eva fékk einnig að fara sem gestur um borð í Akurey, þar sem hún fylgdi Þórði vélstjóra í einum túr en það sem gerði túrinn enn betri var að Þórður talar líka spænsku sem gerði þeirra samskipti skýr og góð. Þetta var frábær og dýrmæt reynsla fyrir Evu. Í lok túrsins sagðist hún hafa fengið smá sjóveikistilfinningu fyrsta daginn en svo ekkert meira restina af vikunni. Hún hefur tjáð þakklæti sitt fyrir að fá að upplifa þessa einstöku reynslu, brosið á andlitinu sagði meira en orð geta lýst. Hún er líka alveg viss um hvar hún vill starfa í framtíðinni, á sjó.

Þetta var tilraun sem hefði getað endað í tómu klúðri en þegar allir eru lausnamiðaðir og jákvæðir þá gengur stundum bara allt upp, sem sýndi sig vel þarna.
Við færðum Evu lítið brot af Íslenska hrauninu, svo hún geti kveikt á reykelsi og hugsað “heim” til Íslands.
Fisktækiskólinn þakkar Brim kærlega fyrir að gera þetta að veruleika fyrir Evu.
Sérstakar þakkir fá Pálmi, Andri og teymið, Viktoría, Kristín, Þórður vélstjóri og allir hinir snillingarnir hjá Brim.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá kveðjukaffi sem var haldið rétt áður en Eva flaug aftur heim reynslunni ríkari og alveg viss hvaða framtíðarstarf hana dreymir um.