Sjávarútvegsskóla unga fólksins lokið í Reykjavík sumarið 2026
Nú er Sjávarútvegsskóla unga fólksins í Reykjavík lokið þetta sumarið og viljum við hjá Fisktækniskóla Íslands þakka öllum þeim sem komu að verkefninu fyrir frábært samstarf.
Fisktækniskóli Íslands tók við umsjón verkefnisins á þessu ári. Sjávarútvegsskóli unga fólksins var áður hýstur hjá Háskólanum á Akureyri undir stjórn Guðrúnar Arndísar Jónsdóttur, sem byggði upp öflugt og mikilvægt starf. Við erum afar þakklát fyrir að fá tækifæri til að halda þessu verðmæta verkefni áfram.
Sjávarútvegsskóli unga fólksins er sumarskóli fyrir 14–16 ára ungmenni og er starfræktur í samstarfi við Vinnuskóla Reykjavíkur, Vinnuskóla Kópavogs, Vinnuskóla Seltjarnarness og fjölmörg fyrirtæki og stofnanir tengd sjávarútvegi. Markmið skólans er að kynna nemendum fjölbreytta starfsemi greinarinnar, menntunarleiðir og atvinnumöguleika.
Í sumar fengu nemendur meðal annars að heimsækja eða fræðast um starfsemi hjá Íslenska sjávarklasanum, Kerecis, Slysavarnaskóla sjómanna – Sæbjörgu, Björgunarsveitinni Ársæli, Sjóminjasafninu og Fiskmarkaði Íslands.
Áhuginn á skólanum var mikill en alls bárust um 145 umsóknir áður en loka þurfti fyrir skráningu. Að þessu sinni voru aðeins 65 pláss í boði sem skiptust á fjórar vikur. Það sýnir vel þann mikla áhuga sem ungt fólk hefur á sjávarútvegi og vonum við að geta fjölgað plássum á næsta ári.
Við viljum jafnframt þakka styrktaraðilum verkefnisins fyrir ómetanlegan stuðning. Brim hf. er stærsti styrktaraðili verkefnisins ásamt Útgerðarfélagi Reykjavíkur, Faxaflóahöfnum og Marel.
Takk fyrir sumarið – við hlökkum til að taka á móti nýjum hópi nemenda á næsta ári.