Samstarfsvettvangur um menntun í sjávarútvegi

Stefnumótunardagur á Hólum

Eftir málstofu um menntun í sjávarútvegi á Sjávarútvegsráðstefnunni í Hörpu í nóvember sl. var settur saman hópur undir yfirskriftinni Samstarfsvettvangur um menntun í sjávarútvegi. Hópurinn hefur fundað nokkrum sinnum en ákveðið var að til að stilla fókusinn enn frekar að taka saman vinnudag, -og fara út úr bænum til að kúpla sig sem mest frá daglegum verkefnum.

Mánudaginn 8. maí var haldinn var vinnufundur í Háskólanum á Hólum þar sem aðilar komu saman og hófst fundurinn á því að Hólmfríður Sveinsdóttir rektor á Hólum bauð gesti velkomna.

Í framhaldið hófst tvískipt dagskrá; fyrri hluti vinnunnar snéri að verkefninu Auðlindin okkar sem er verið að vinna fyrir Matvælaráðuneytið og var hópurinn beðinn um að koma með tillögur í tengslum við það starf. Seinni hluti vinnudagsins fór í stefnumótunarvinnu tengda starfi þessa hóps.

Hólafólk veitti höfðinglegar móttökur og mikið var gott að koma aðeins í sveitina fögru.

Previous
Previous

Fleiri norskir gestir á ferð

Next
Next

Hátíðleg stund við styrkveitingu námsstyrkja til nemenda