Fisktækniskólinn lagði land undir fót ásamt nemendum og heimsótti North Sea College í Thyborøn í Danmörku.
Þar var tekið einstaklega vel á móti okkur og fengum við tækifæri til að kynnast starfsemi skólans, skoða aðstöðuna og taka þátt í fjölbreyttum og áhugaverðum verkefnum.
Ferðin var bæði fróðleg og skemmtileg og komum við heim með nýja reynslu og góðar minningar.
Bestu þakkir til starfsfólks North Sea College fyrir frábærar móttökur og ánægjulega heimsókn!